Logo
 
 
No images
 
 
 
   
Málþing um varðveislu landfræðilegra gagna 23. september Prentvæn útgáfa
Er landfræðilegur menningararfur í hættu?
Fimmtudaginn 23. september 2010 í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni (Þjóðarbókhlöðu) Kl. 9:00-12:00
Landsbókasafn Íslands, Þjóðskjalasafn Íslands og LÍSU samtökin hafa hafið samstarf um að leita leiða til þess að styrkja ferla og finna lausnir á varðveislumálum landfræðilegra gagna hér á landi. Með málþinginu er ætlunin að kynna málefnið fyrir þeim sem ætlað er að vinna við varðveislu gagnanna og öðrum sem áhuga hafa á því.
Þar sem málþingið höfðar einkum til þeirra sem sjá um varðveislumál, eru LÍSU félagar eru beðnir um að koma auglýsingu um málþingið á framfæri við bókasafns- og upplýsingafræðinga/skjalastjóra á sínum vinnustað og hvetja þá til að sækja málþingið. Tilkynna þarf þátttöku á netfangið: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 17. september.
 
Landupplýsingar og heilsa,13.-14. september, Kaupmannahöfn Prentvæn útgáfa
gisheilsa  Þetta er fyrsta norræna námstefnan þar sem kynntir eru ýmsir möguleikar á notkun landupplýsingatækni og heilsutengdum upplýsingum. Flutt verða erindi um rannsóknir á lýðheilsu út frá ýmsum sjónarhornum eins og umhverfi, skipulagi, mataræði, hreyfingu og forvörnum og fjallað er um atriði eins og aðgengi að upplýsingum, verkferla og ákvörðunartöku. Fyrirlesarar verða frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Námstefnan er haldin af GI Norden og Geoforum Danmark Tilgangur námstefnunnar er einkum að auka samstarf sérfræðinga á Norðurlöndum sem vinna með heilsutengdar upplýsingar.  
 
  
 
GI Norden ráðstefna og sumarskóli 14-16 júní Selfoss Prentvæn útgáfa

Erindi og myndir frá GI Norden Selfoss  hér !  Photos-1  Photos-2

Norræn ráðstefna 

um notkun landupplýsingatækni við vöktun, hættumat vegna náttúruvár og umhverfisskipulag og umhverfisstjórnun, verður haldin á Selfossi 14.-15. júní á vegum GI Norden og LÍSU samtakanna. Flutt verða yfir 40 erindi sjá nánar Yfirlit-dagskrá  og lýsingu á erindum Lýsing-erindi

Við viljum vekja athygli á erindum á ráðstefnunni sem eru um atburðarásina á Eyjafjallajökulsvæðinu. Í lok ráðstefnunnar verður boðið uppá einstaka vettvangsferð og umfjöllun um umbrotin undir leiðsögn sérfræðinga. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna

Skráning

Sýnendur þátttökugjald 100.00 krónur   

Norræni sumarskólinn 16. júní Dagskrá  Einstakt  tækifæri fyrir þá sem vilja auka færni sína í notkun GIS hugbúnaðar

 
Skráning lands og jarða, ráðstefna 26. maí Prentvæn útgáfa
Norðurlandsráðstefna LÍSU samtakanna
Skráning lands og jarða Erindi   Myndir
Hótel KEA, Akureyri
Miðvikudaginn 26. maí    Kl 10:00-14:15
Verð:                                     LÍSU félagar:         kr. 5000                Aðrir: kr. 6000
Skráning:                              Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.    til 22. maí 
LÍSU samtökin í samvinnu við Fasteignaskrá Íslands halda ráðstefnu á Akureyri miðvikudaginn 26. maí 2010 um skráningu jarða og lóða og gagna sem liggja þar að baki. Skráning jarða og landa er í höndum margra aðila og mikil þörf er á skýru verkferli, samræmdum vinnubrögðum og öruggum upplýsingum um hlutverk aðila í þessu samhengi. Á ráðstefnunni verður skráning lands skoðuð frá ólíkum sjónarhornum, skráningaraðilanna og notendanna og þarfir þeirra skilgreindar.  Í lok fundar verður boðið uppá umræðukaffi þar sem þátttakendur koma á framfæri sínum tillögum um leiðir til úrbóta.
 
Grunngerð landupplýsinga Prentvæn útgáfa
Frumvarp um grunngerð landupplýsinga
Hádegisverðarfundur, miðvikudaginn 14. apríl 2010, kl 12:00-13:30 á
Grand Hótel,  Hvammi. Flutt verða erindi frá umhverfisráðuneytinu, Landmælingum Íslands og LÍSU samtökunum. Dagskrá
 
 

Viðburðir

September 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
 

Á næstunni

Fim sep 23 @09:00 - 12:00
Varðveisla gagna, málþing
Mið okt 13 @13:00 - 05:00
GIS er einfalt! Námskeið
Fim okt 21 @09:00 - 04:00
Landupplýsingar 2010
Fim feb 03 @08:00 - 05:00
Námstefna; Plan4all
 
Icelandic(IS)English (United Kingdom)
 
 
 
     
 
www.veflausnir.is