BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv6.3.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://landupplysingar.is/
X-WR-CALNAME:LISA
X-WR-CALDESC:Samtök um landupplýsingar
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
DTSTART;TZID=UTC:20240924T150000
DTEND;TZID=UTC:20240924T170000
DTSTAMP:20240826T131700
UID:MEC-6e8404c3b93a9527c8db241a1846599a@landupplysingar.is
CREATED:20240826
LAST-MODIFIED:20240827
PRIORITY:5
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Vinnustaðaheimsókn til Landhelgisgæslunnar
DESCRIPTION:Sjómælinga- og siglingaöryggisdeild er deild innan Landhelgisgæslu Íslands (LHG).\nSjómælingar og sjókortagerð er undirstaða siglinga við Ísland og lykilatriði þegar kemur að öryggi sjófarenda.\nLHG ber ábyrgð á útgáfu íslenskra sjókorta samkvæmt skuldbindingum íslenska ríkisins skv. alþjóðasamningnum um öryggi mannslífa á hafinu. Þá sér LHG um milliríkjasamstarf fyrir Íslands hönd á sviði sjómælinga og sjókortagerðar. Í lögum og reglugerðum er kveðið skýrt á um hlutverk LHG á sviði sjómælinga og sjókortagerðar, en þau eru:\n\nAð sjá um sjómælingar (dýptarmælingar) meðfram strönd Íslands, utan hafna og innan íslenskrar efnahagslögsögu eftir því sem nauðsynlegt er talið á hverjum tíma.\nAnnast gerð og útgáfu prentaðra og rafrænna sjókorta yfir hafsvæðið umhverfis Ísland, þ.e. aðsiglingakorta, strandsiglingakorta og yfirsiglingakorta. Jafnframt að uppfæra og endurnýja kortin eftir því sem þörf krefur.\nGefa út tilkynningar til sjófarenda og önnur upplýsingarit og sjóferðagögn, s.s. sjávarfallatöflur, leiðsögubók (-bækur) fyrir sjómenn við Ísland, upplýsingarit um tákn og skammstafanir í sjókortum og kortaskrá.\nSafna gögnum sem tengjast sjómælingum og sjókortagerð og varðveita þau.\nVera dómsmálaráðuneyti til ráðuneytis á fagsviðum sem stofnunin starfar á samkvæmt reglugerð þessari varðandi stefnumótun á sviði sjómælinga og opinberrar sjókortagerðar.\n\n
URL:https://landupplysingar.is/index.php/events/vinnustadaheimsokn-til-landhelgisgaeslunnar/
END:VEVENT
END:VCALENDAR
