Hafðu samband
Hafðu samband

Framkvæmdaráðstefna

Dagskrá

13:00 – 13:10 Opnunarávarp. Þórdís Sigurgestsdóttir, formaður LÍSU

13:10 – 13:30 Framkvæmdasíður Reykjavíkur. Þórarinn Jón Jóhannsson – LUKR

13:30 – 13:50 Framkvæmdasjóður ferðamannastaða og landupplýsingar Ferðamálastofu. Halldór Arinbjarnarson – Framkvæmdasjóður ferðamannastaða.

Í erindinu verður farið yfir tilgang og starfsemi Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Sagt frá þeim framkvæmdum sem eru á döfinni í kjölfar nýjustu úthlutunar sjóðsins og sýnd dæmi um verkefni sem byggst hafa upp fyrir tilstuðlan hans. Einnig hvernig nálgast má og nýta sér upplýsingar um úthlutanir sjóðsins frá upphafi, sem og aðrar landupplýsingar sem Ferðamálastofa býr yfir.

14:00 – 14:20 Landfræðilegsýn á framkvæmdir Veitna. Emil Snorri Árnason – Veitur

Með það að markmiði að bæta upplýsingagjöf til viðskiptavina eru Veitur nú að vinna aðframkvæmdakorti. Í því felst m.a.samþætting milli kerfa, innleiðing nýs vinnulags og birting upplýsinganna tilviðeigandi aðila.

HLÉ

15:00 – 15:20 Stafrænar lausnir fyrir gatnalýsingargögn. Valdimar Ásbjörn Kjartansson – Geoform

GeoForm ehf býður gatnalýsingareigendum aðstoð við að koma skikka á gatnalýsingargögnin. Við bjóðumst til að koma gatnalýsingargögnum inn í nýjan staðlaðan gatnalýsingargrunn þróuðum með Reykjavíkurborg og fleiri hagsmunaaðilum. Gagnagrunnurinn er þróaður með það að leiðarljósi að gögnin muni eftir ákveðin “gagnaþvott”, standast kröfur nútímans og þarfir um gagna gæði svo hægt sé að nýta gögnin í fjölbreyttum tilgangi, eins og rekstri, fjárfestingu, viðhaldsverkefnum, sem grunnlag fyrir hönnun, ábyggilegrar upplýsingaöflunar o. fl. Einnig býður GeoForm upp á ýmis landfræðileg verkfæri og tól til að skrá ný gögn, gera breytingar, halda yfirsýn yfir gögn, verkefni og verkferla auk þess að bjóða viðskiptavinum upp á þann möguleika að innfæra og viðhalda gatnalýsingargögnum.

15:20-15:30 Vegagerðin, kortasjár og landupplýsingar. Eiður Daði Bjarkason – Vegagerðin

Erindið fjallar um helstu kortasjár Vegagerðarinnar og þau verkefni sem tengjast landupplýsingum.

 

15:20– 15:40 Skipulagsgátt. Skipulagsstofnun – Guðrún Jensdóttir

Kynning á Skipulagsgátt þar sem veitt verður yfirlit á helstu eiginleikum og atriðum sem hana varðar, þ.m.t. tilgang Skipulagsgáttar og ávinning, vöktunar- og áskriftarmöguleika, áframhaldandi þróun o.fl.

15:40 – 16:00 Landupplýsingaspjall

 

  • Fyrirlestrasal Þjóðminjasafnins – 8. maí, 

  • 13:00 – 16:00.

  • Þátttökugjald fyrir meðlimi 10.000 – hinir 15.000

  • Skráning hér

 

LÍSA

Samtök um landupplýsingar

Árleyni 22

112 Reykjavík

s: 6997918

lisa@landupplysingar.is

 

We are using cookies to give you the best experience. You can find out more about which cookies we are using or switch them off in privacy settings.
AcceptPrivacy Settings

  • Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu

Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun og virkni vefsíðunnar, til að geta notað lausnir frá samfélagsmiðlum og til að bæta efni og birta viðeigandi markaðsefni.