Meðlimum LÍSU bauðst á dögunum að fara í vinnustaðaheimsókn í Loftmyndir. Loftmyndir þekkja eflaust allir í landupplýsingabransanum á Íslandi en þau sérhæfa sig í loftmyndatöku, gerð myndkorta og landlíkana, uppsetningu og rekstri vefkortalausna auk skyldra verkefna. Meðal viðskiptavina Loftmynda eru fjöldi sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja. Karl framkvæmdastjóri tók á móti okkur og hélt smá tölu um fyrirtækið og svo gátu gestir gengið á milli borða og fengið að vita allt sem þau vildu vita um starf og verkefni Loftmynda. Við í LÍSU þökkum starfsfólki Loftmynda kærlega fyrir móttökurnar.







