Areal focus – Vefnámskeið
GI Norden er að undirbúa norrænt vefnámskeið um svæðismiðaða áherslu (areal focus). Vertu með á vefnámskeiði þar sem við skoðum hvernig svæðismiðuð áhersla er nýtt á grunni landupplýsinga í norrænu löndunum. Svæðismiðuð áhersla er víðtækt hugtak sem getur til dæmis náð yfir náttúruvernd, líffræðilega fjölbreytni og græn svæði í borgum. GI Norden stendur fyrir þessu ókeypis vefnámskeiði. GI Norden er norrænt tengslanet á sviði landupplýsinga og GIS. Vegna mismunandi tímabelta hefst vefnámskeiðið á Íslandi kl. 13:00 (GMT), í Svíþjóð, Danmörku og Noregi kl. 14:00 (GMT+1) og í Finnlandi kl. 15:00 (GMT+2). Ekki missa af þessu tækifæri til að dýpka skilning þinn á svæðismiðaðri áherslu – og fá dæmi frá norrænu löndunum.
