Hafðu samband
Hafðu samband

Haustráðstefna LÍSU 2026

Kortlagning og eftirlit innviða með sjálfvirkum drónum. 

Tryggvi Stefánsson – Svarmi

Umræðan um vélmenni og gervigreind snýst oft um það sem er handan við hornið. Í innviðaeftirliti er hún þegar orðin daglegt brauð: dróni sem býr í sjálfvirkri stöð (e. drone-in-a-box) úti í náttúrunni, fer í loftið án þess að nokkur sé á staðnum, flýgur fyrirfram skilgreinda leið og skilar gögnum beint inn í DATACT. Svarmi rekur nú þegar tvær slíkar stöðvar á vettvangi. 
 
Í erindinu verður farið yfir hvernig þessi kerfi eru notuð í dag við eftirlit með innviðum og framkvæmdasvæðum, og hvað skilur að sýnikennslu og raunverulegan rekstur: flugheimildir, rekstur og nákvæmni sem stenst kröfur landupplýsinga. 

Hver á Ísland? Landeignaskrá

Friðrik Bjarnason – HMS 

Farið verður yfir tilurð landeignarskrár og Áætlun eignamarka verkefnið.  Hvernig þessi tvö gangasöfn eru spunnin saman og hvernig þau eru nýtt til þess að gera eignarhald á landi sýnilegt.  

Landeignaskrá: https://landeignaskra.hms.is/ 

Áætlun eignamarka: https://hms.is/eignamork 

Mælaborð Byggðastofnunar

Þorkell Stefánsson – Byggðastofnun 

Farið verður gróflega yfir hvernig mælaborð Byggðastofnunar verða til, frá undirbúningi kortagrunna og gagnavinnslu yfir í gagnvirka framsetningu í mælaborði. Komið verður inn á hvernig landfræðileg gögn, þar á meðal sveitarfélagamörk á hverjum tíma, eru undirbúin og tengd tölfræðigögnum í mælaborði. Ávallt er reynt að setja gögnin þannig fram að hægt sé að sía þau eftir helstu breytum, svo sem svæðum og tímabilum. Þannig getur notandinn sjálfur ákveðið út frá hvaða sjónarhorni upplýsingarnar eru skoðaðar. 

National-scale erosion mapping 

Jay Philip Borchard – Land og skógur

This project focuses on developing methods to map and assess soil erosion across Iceland at a national scale. It combines field observations of erosion with satellite remote sensing and terrain data to better understand the spatial distribution and severity of erosion. Machine-learning methods are used to integrate these different data sources and produce a consistent, high-resolution map that can support erosion monitoring, land management, and environmental planning. 

Landupplýsingar með augum upplýsingaöryggis

Jón Kristinn Ragnarsson – Reykjavíkurborg

Hvernig horfir upplýsingaöryggisstjóri eða rekstrarmanneskja á landupplýsingar og kerfi? Þegar upplýsingar eiga oftast að vera opnar og aðgengilegar, hvernig passa þá hefðbundar linsur upplýsingaöryggis á þessar upplýsingar og hvernig er það þýtt yfir í áþreifanlegar rekstrarkröfur fyrir kerfin sem vinna með þessar upplýsingar? 

Hver ert þú?

Tryggvi Hjörvar

Ísland.is og ArcGIS – hvernig tengjum við notanda í ArcGIS við íslenska kennitölu? Fjallað verður um OpenID innskráningu og auðkenningu með rafrænum skilríkjum.  Erindi Tryggva kemur jafnframt inn á öryggismál, sérstaklega hvað varðar örugga auðkenningu notenda, innskráningu og aðgangsstýringu í landupplýsingakerfum.  

Jökullónagagnagrunnur

Ester Hlíðar Jensen – Veðurstofan 

Loftslagsbreytingar hafa valdið hraðri hopun íslenskra jökla og samhliða því hefur útbreiðsla jökullóna aukist. Þessi þróun getur aukið náttúruvá, meðal annars vegna breytinga á afrennsli, flóðahættu og áhrifa á innviði á jökuljaðarsvæðum. Í erindinu er kynntur nýr og yfirgripsmikill gagnagrunnur um jökullón á Íslandi sem byggir á gervitunglagögnum frá SPOT5, Landsat og Sentinel-2, loftmyndum, hæðarlíkönum og öðrum landfræðilegum grunngögnum. Gagnagrunnurinn heldur utan um upplýsingar um staðsetningu, útbreiðslu og þróun jökullóna og gerir kleift að fylgjast með breytingum í tímans rás með samræmdum hætti. Með stuðningi veður- og úrkomugagna er unnt að draga úr óvissu við túlkun vatnsborðs og bæta mat á raunverulegri þróun lónanna. Gagnagrunnurinn er mikilvægur grunnur fyrir vöktun náttúruvár og rannsóknir á þeim breytingum sem fylgja áframhaldandi hopun jökla á Íslandi. 

Kvistur – Plöntuumsóknarvefur Lands og skógar

Tómas Halldórsson Alexander – LogS

Kynning á þróun og uppsetningu plöntuumsóknarvefs Lands og skógar. Yfirferð á umsóknarferlinu og þeim ferlum sem liggja að baki, frá umsókn landeiganda til úthlutunar ráðgjafa.  

Esri Premium Hub – ný leið til að tengja gögn, þekkingu og notendur

Atli Guðjónsson / Ruth Guðmundsdóttir – LogS

Í erindinu verður fjallað um þær áskoranir sem Land og skógur stóð frammi fyrir við miðlun gagna og þekkingar og hvernig Esri Premium Hub getur skapað ný tækifæri. Við deilum reynslu okkar af verkefninu, nálguninni sem varð fyrir valinu og þeim möguleikum sem við sjáum til að tengja betur saman gögn, efni og notendur.

LÍSA

Samtök um landupplýsingar

Árleyni 22

112 Reykjavík

s: 6997918

lisa@landupplysingar.is

 

GDPR

  • Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu

Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun og virkni vefsíðunnar, til að geta notað lausnir frá samfélagsmiðlum og til að bæta efni og birta viðeigandi markaðsefni.