Hafðu samband
Hafðu samband

Í tilefni hins alþjóðlega GIS-dags þann 18. nóvember ætlar LÍSA að efna til bjórhittings á RVK Bruggfélagi, Skipholti 33 frá kl. 17. Hægt er að melda sig á viðburðinn

GIS-dagurinn er haldinn miðvikudag, þriðju viku nóvember ár hvert og í ár ber hann upp á 18. nóvember. Markmið dagsins er að sýna hvernig GIS hjálpar samfélögum að skilja, stýra og skipuleggja umhverfi sitt og hvernig staðbundin tækni styður upplýstar ákvarðanir í mörgum geirum. Háskólar, bókasöfn, sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki um heim allan skipuleggja sjálf sína eigin viðburði s.s. fyrirlestra, veggspjaldasýningar, vinnustofur og kortagerð og hægt er að sjá hvaða viðburðir eru í boði á kortasjá www.gisday.com.

GIS-samkoman okkar verður með öllu óformleg og er ætlunin að gefa landupplýsingafólki á Íslandi tækifæri til að hittast, tengjast og rabba saman yfir bjórkollu.

LÍSA

Samtök um landupplýsingar

Árleyni 22

112 Reykjavík

s: 6997918

lisa@landupplysingar.is

 

GDPR

  • Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu

Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun og virkni vefsíðunnar, til að geta notað lausnir frá samfélagsmiðlum og til að bæta efni og birta viðeigandi markaðsefni.