GAGNVIST2025
Hagstofa Íslands í samstarfi við Háskóla Íslands og Miðstöð stafrænnar nýsköpunar efnir til ráðstefnu um þróun íslenska gagnavistkerfisins fimmtudaginn 27.nóvember 2025.
Markmið ráðstefnunnar er að kynna hin gríðarlegu tækifæri til verðmætasköpunar sem liggja í bættu aðgengi að gögnum og hagnýtingu gervigreindar við nýtingu þeirra.
Tilgangur GAGNVIST er að leiða saman þá sem safna og miðla virðisaukandi gögnum og notendur þessara gagna, bæði opinbera aðila og fyrirtæki.
