Vinnustaðaheimsókn í Land og skóg
Land og skógur ætla að bjóða okkur í LÍSU í heimsókn þar sem við fáum að fræðast um landupplýsingastarfið þeirra og skoða nýja starfstöð þeirra að Vínlandsleið.
Skráning er opin fyrir alla meðlimi í LÍSU .
Vinnustaðaheimsóknin verður þann 10. september á milli 16:30 og 18:00. Land og skógur hefur flutt sig um set og er núna staðsett að Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík.
Við hvetjum landupplýsingafólk til að mæta og sjá það starf sem gisararnir hjá Landi og skógi hafa verið að vinna að.
