AFMÆLI LÍSU
LÍSA verður þrítug núna í mars og því ætlum við að blása til ráðstefnu um framtíð landupplýsinga og velta fyrir okkur hvert við stefnum. Ráðstefnan verðu blanda af erindum og málþingi og verða haldin erindi um spennandi verkefni sem eru í gangi. Þema málþingsins verður samnýting gagna á milli stofnana, hvernig við látum gögnin tala saman á milli stofnana og hvaða spor hafa verið stigin til að geta það og hvað er hægt að gera betur.
