Hótel Kríunesi, við Elliðavatn
13. nóvember
Frá kl. 9:00 – 15:30
Verð fyrir meðlimi LÍSU: 30.000
Verð fyrir aðra: 43.000
Verð fyrir nema: 10.000
Veitingar innifalnar
9:00 Húsið opnar
9:30 – 9:40 Opnunarávarp
9:40 – 10:00 Kortagluggi. Ásta Kristín Óladóttir – Náttúrufræðistofnun.
Landupplýsingagátt grunngerðarlaganna hefur fengið verulega endurnýjun með það að markmiði að gera hana aðgengilegri og nýtanlegri fyrir fleiri. Áhugi almennings og fagfólks á notkun kortagagna í ákvarðanatöku hefur aukist, hvort sem það er til að skipuleggja ferðalög eða styðja stefnumótun stjórnvalda. Lögð hefur verið áhersla á að birta nöfn gagna á mannamáli og flokka þau í samræmi við íslenskt gagnalandslag og þjóðfélagsumræðu, auk þess sem bætt hefur verið við nýjum möguleikum sem auka notagildi gáttarinnar.
10:00 – 10:20 Framkvæmdakortasjá og gjaldskráarkortasjá – Anja Þórdís Karlsdóttir – Rarik
10:20 – 10:40 Landfræðileg sýn á framkvæmdir Veitna. Emil Snorri Árnason – Veitur
Með það að markmiði að bæta upplýsingagjöf til viðskiptavina eru Veitur nú að vinna að framkvæmdakorti. Í því felst m.a. samþætting milli kerfa, innleiðing nýs vinnulags og birting upplýsinganna til viðeigandi aðila.
10:40 – 11:00 Kaffihlé
11:00 – 11:20 Landupplýsingar og Borgarlínan. Hallbjörn Reynir Hallbjörsson – Betri samgöngur
11:20 – 11:40 Framkvæmdasjóður ferðamannastaða og landupplýsingar Ferðamálastofu. Halldór Arinbjarnarson – Framkvæmdasjóður ferðamannastaða.
Í erindinu verður farið yfir tilgang og starfsemi Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Sagt frá þeim framkvæmdum sem eru á döfinni í kjölfar nýjustu úthlutunar sjóðsins og sýnd dæmi um verkefni sem byggst hafa upp fyrir tilstuðlan hans. Einnig hvernig nálgast má og nýta sér upplýsingar um úthlutanir sjóðsins frá upphafi, sem og aðrar landupplýsingar sem Ferðamálastofa býr yfir.
11:40 – 12:00 Vegagerðin, Landupplýsingar og Framkvæmdakortasjá. Eiður Daði Bjarkason – Vegagerðinni
Kynning á landupplýsingamálum hjá Vegagerðinni, framkvæmdar upplýsingum á Vegagerdin.is og framkvæmdarkortasjá
12:00 – 12:40 Hádegismatur
12:40 – 14:00 Landupplýsingaspjall
14:00 – 14:20 Ísland upp og niður. Karl Arnar Arnarsson – Loftmyndir.
Nýlega var opnuð þrívíddar útgáfa af map.is og á næstu misserum munu koma inn á kortið gögn sem koma til með að opna nýjar landfræðilegum víddir. Í erindinu verður farið yfir þetta ásamt almennri stöðu grunnkortagerðar hjá Loftmyndum
14:20 – 14:40 Kaffihlé
14:40 – 15:00 Stafrænar lausnir GeoForm. Valdimar Kjartansson – Geoform.
Kynningin gefur innsýn í ýmsar stafrænar landupplýsingalausnir sem GeoForm hefur þróað fyrir Reykjavíkurborg ofl. viðskiptavini til að stuðla að góðri yfirsýn, skilvirkni og tímasparnaði. T.d. verður gefin innsýn í verkefni tengd, gatnalýsingu, bilana- og tjónaskráningu, innfærslu, innmælingum, flygildaþjónustu, rauntímagögnum ofl.
15:00 – 15:20 Copernicus – staða og tækifæri. Marco Pizzolato – Náttúrufræðistofnun.
Náttúrufræðistofnun Íslands gegnir hlutverki landstengiliðs Íslands við Copernicus-áætlun Evrópusambandsins. Ýmis tækifæri hafa þegar verið nýtt í tengslum við áætlunina, en enn eru mörg ónotuð. Marco fjallar um stöðu mála, helstu verkefni á Íslandi og nýleg dæmi um hvernig Copernicus-gögn nýtast í rannsóknum og stefnumótun.
15:20 Ráðstefnu lokið
LÍSA
Samtök um landupplýsingar
Árleyni 22
112 Reykjavík
s: 6997918
lisa@landupplysingar.is
