Aðalfundurinn okkar í LÍSU var haldin í Vegagerðinni þann 25. febrúar síðastliðinn. Hann fór vel fram að venju og voru ársreikningur 2025 og fjárhagsáætlun 2026 samþykkt. Ennfremur kvöddum við tvo stjórnarmeðlimi; Ásbjörn Ólafsson og Tryggva Má Sigurjónsson. Í þeirra stað voru Eiður Daði Bjarkason frá Vegagerðinni og Atli Guðjónsson frá Landi og skógum kosnir í stjórn. Stjórnarformaður er enn Þórdís Björk Sigurgestsdóttir.




